Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans eftir bílslys á mótum Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar í Garðabæ.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um að ræða árekstur tveggja bifreiða. Beita þurfti klippum til að ná manneskju úr öðrum bílnum en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort um ökumann bifreiðarinnar var að ræða.