Alls fóru 314.526 farþegar um Keflavíkurflugvöll í nóvember og eru það 26,4% fleiri farþegar en í nóvember í fyrra. Á fyrstu 11 mánuðum ársins fóru 25,5% fleiri farþegar um Keflavíkurflugvöll en sömu mánuði í fyrra.
Þetta kemur fram í samantekt Isavia.
Á fyrstu 11 mánuðum ársins fóru 4.548.622 farþegar um flugvöllinn, borið saman við 3.623.534 farþega á þessu tímabili í fyrra. Það er 25,5% aukning.
Í nóvember fóru 314.526 farþegar um Keflavíkurflugvöll, en 248.828 í þessum mánuði í fyrra.
Vöruflutningar um völlinn jukust úr 3.976 tonnum í 3.557 tonn, eða um 11,8%. Hafa flutningarnir aukist um 3,6% á fyrstu 11 mánuðum ársins.