Mikill meirihluti íbúa á Suðurnesjum er hlynntur iðnaðaruppbyggingu í Helguvík, samkvæmt viðhorfskönnun sem áhugahópur um atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi fékk MMR til að gera.
Þannig sögðust 72% þeirra sem svöruðu vera frekar eða mjög hlynntir iðnaðaruppbyggingu en 28% mjög eða frekar andvígir.
Svipað hlutfall svarenda, eða 72,3%, sagðist frekar eða mjög hlynnt því að annars konar orkufrekur iðnaður yrði settur á fót í Helguvík ef í ljós kæmi að þar mundi ekki rísa álver. Mjög eða frekar andvígir sögðust 27,7%.