Báðar albönsku fjölskyldurnar sem fluttar voru frá landinu í nótt drógu kærur sínar til kærunefndar Útlendingastofnunar vegna ákvörðunar stofnunarinnar um að þau fái ekki hæli hér á landi til baka og óskuðu eftir flutningi til Albaníu.
27 einstaklingar frá Albaníu og Makedóníu voru flutt frá landinu kl. 4 í nótt, þar af fimm fjölskyldur með börn. Ríkislögreglustjóri framkvæmir flutninginn og fór fólkið með flugi Frontex landamærastofnunarinnar.
Þetta kemur fram í upplýsingum frá Útlendingastofnun.
mbl.is óskaði eftir viðtali við Kristínu Völundardóttir, forstjóra Útlendingastofnunar, vegna málsins en hún hélt úr landi í morgun.
Frétt mbl.is: Flutt úr landi í skjóli nætur
Frétt mbl.is: Enginn Albani fengið hæli hér á landi