Krummi fær skilorðsbundið fangelsi

Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson er betur þekktur sem Krummi í …
Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson er betur þekktur sem Krummi í Mínus.

Odd­ur Hrafn Stefán Björg­vins­son, bet­ur þekkt­ur sem Krummi í Mín­us, var í Hæsta­rétti í dag dæmd­ur í tveggja mánaða skil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir að sparka í fót­legg lög­reglu­manns við skyldu­störf.

Söngv­ar­inn var dæmd­ur í sex­tíu daga skil­orðsbundið fang­elsi vegna árás­ar á lög­reglu­mann við skyldu­störf í Héraðsdómi Reykja­ness í októ­ber í fyrra. Hann hafnaði al­farið sak­argift­um en dóm­ur­inn féllst ekki á rök­semd­ir verj­anda hans.

Í ákær­unni sagði að Krummi hefði ráðist með of­beldi á lög­reglu­mann við skyldu­störf við Snorra­braut í Reykja­vík 12. júní 2013. Einnig að hann hefði sparkað í hægri fót­legg lög­reglu­manns­ins.

Krummi þarf jafn­framt að greiða all­an áfrýj­un­ar­kostnað máls­ins, 508.747 krón­ur, þar með tal­in mál­svarn­ar­laun verj­anda síns, Vil­hjálms Hans Vil­hjálms­son­ar hæsta­rétt­ar­lög­manns, 496.000 krón­ur.

Fyrri frétt mbl.is: Krummi fær 60 daga skil­orðsbundið fang­elsi

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka