Þingið komið í jólafrí

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis. mbl.is/Ómar Óskarsson

Síðasta þingfundi fyrir jólahlé var slitið skömmu eftir kl. 19 í kvöld. Frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar til 49 einstaklinga var síðasta verk þingmanna og var það samþykkt með atkvæðum allra þingmanna sem voru viðstaddir atkvæðagreiðsluna.

Einar Kr. Guðfinnsson, forseti þingsins, sagði að undanfarnir dagar hafi verið erfiðir fyrir margra hluta sakir. Það hafi orðið honum vonbrigði að ekki hafi tekist að halda starfsáætlun þingsins. Eins hafi það verið honum ærið umhugsunarefni hvernig umræður um fjárlög hafi þróast á undanförnum árum.

Jafnan hafi meginfjárlagaumræðan staðið í 10-15 klukkustundir og lokið sama dag og hún hófst. Þannig hafi það hins vegar ekki verið frá haustinu 2012 þegar fjárlög voru afgreidd 20. desember. Hann vildi að þingmenn íhuguðu hvernig hægt væri að gera umræðurnar markvissari en jafnframt eðlilegt svigrúm fyrir ítarlegar umræður.

Hlé verður nú gert á þingfundum til 19. janúar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert