Lögreglan hefur lokið störfum á vettvangi slyssins í Ártúnsbrekku og er því búið að opna fyrir umferð um Vesturlandsveg til austurs á ný.
Lokað var fyrir umferð um Ártúnsbrekkuna til austurs á sjöunda tímanum í morgun vegna mjög alvarlegs slyss þar en ekið var á hjólreiðamann.