Tíu ára drengur varð fyrir því í gær að bakpoki hans festist í dyrum strætisvagns. Var drengurinn á leið út úr vagninum þegar dyrnar lokuðust á eftir honum með þessum afleiðingum. Hugðist vagnstjórinn aka af stað en vinur drengsins náði að hrópa til hans og láta hann vita hvers kyns væri.
Faðir drengsins, Friðleifur Kristjánsson, hafði um leið samband við höfuðstöðvar Strætó, en þá hafði sonur hans hringt í hann skelfingu lostinn eftir atvikið. Hann segir í samtali við mbl.is að illa hefði geta farið.
„Það var bara heppni að einhverjir strákar voru þarna sem gátu öskrað á vagnstjórann að taka ekki af stað. Hver veit hvernig þetta hefði getað farið annars? Vagninn hefði allt eins getað dregið hann á eftir sér og undir sig,“ segir Friðleifur. Hann bætir við að hann sé þakklátur þeim sem komu syni sínum til hjálpar.
Jóhannes Rúnarsson framkvæmdastjóri strætó sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að sérstakur öryggisbúnaður ætti að vera til staðar til að koma í veg fyrir svona tilvik.
„Í fyrsta lagi eiga dyrnar ekki að geta lokast ef eitthvað er á milli þeirra, og í öðru lagi á vagn ekki að geta farið af stað ef dyrnar eru opnar,“ sagði Jóhannes.og bætti við að umræddur búnaður hafi komið í strætisvagna í kringum árið 1990.
„Ef þetta kerfi á að vera í vögnunum þá hvet ég Strætó til að virkja það sem fyrst,“ segir Friðleifur og bendir á að sonur sinn hafi áður lent í keimlíku atviki, auk þess sem hann hafi fyrir skömmu orðið vitni af því þegar þroskahömluð kona klemmdist á milli hurðanna.
„Þá stendur eftir spurningin; af hverju er búnaðurinn ekki virkur?“
Frétt mbl.is: Keyrði af stað með barnavagn í dyrunum
Frétt mbl.is: Buðu móðurinni áfallahjálp