Kolheimsk tussa, frekju hexi og stelpuræfill eru meðal þeirra orða sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, hefur verið kölluð í þessari viku.
Áslaug segir frá þessu í færslu á Facebook síðu sinni og segir tilefnið vera þátttöku hennar í pólitískum umræðuefni þar sem hún viðraði sínar skoðanir um ýmis málefni.
„Þetta fer ekki sérstaklega fyrir brjóstið á mér frekar en áður þar sem þetta gerist reglulega. Hvort sem ég er kölluð veruleikafirrt snobbtík, frekja eða humartík snýst það allt um reyna níða málstað minn í stað málefnalegrar gagnrýni sem ávallt er velkomin. Stundum finnst mér ég standa mig vel, stundum ekki, ég veit ekki allt og reyni bara alltaf að gera mitt besta,“ skrifar Áslaug.
Segir hún það mun frekar plaga sig að einmitt þetta umhverfi sé það sem ungt fólk megi eiga von á taki það þátt í stjórnmálum, rétt eins og Áslaug sjálf hvetur það til að gera. Ungt fólk hafi miklar skoðanir og áhuga á þátttöku í stjórnmálastarfi en skiljanlegt sé að mörgu leyti að það staldri við þegar viðtökurnar hjá fólki sem er þeim ósammála séu á við þær sem hún má þola.
„Það er nú auðvitað meiri frekjan í mér að hafa skoðanir og vera stundum ákveðin. Ég ætti auðvitað helst að lækka í mér röddina og vera prúðari, því þannig eiga ungar konur að vera? Eða hvað? Er ekki örugglega 2016?“
Kolheimsk tussa, frekju hexi og stelpuræfill eru meðal þeirra orða sem ég hef verið kölluð í þessari viku eftir þátttöku...
Posted by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir on Saturday, January 9, 2016