Eitt af þeim atriðum sem umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, óskar eftir að fá útskýringar á frá Páli Winkel fangelsismálastjóra er hvort kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore hafi fengið leyfi til að mynda á Kvíabryggju, líkt og þrír fangar kvarta yfir í erindi til umboðsmanns.
Frétt mbl.is: Kvartað undan fangelsismálastjóra
Í bréfi umboðsmanns, sem hann sendi fangelsismálastjóra á gamlársdag, og mbl.is hefur undir höndum, segir að í kvörtun þremenninganna, þeirra Magnúsar Guðmundssonar, Ólafs Ólafssonar og Sigurðar Einarssonar, sem allir voru dæmdir í fangelsi í Al Thani-málinu, sé því haldið fram að tökulið kvikmyndagerðarmannsins Michael Moore hafi eytt næstum heilum degi í fangelsinu Kvíabryggju. Tilgangurinn hafi verið að reyna að ná myndum af þeim Magnúsi, Ólafi og Sigurði. „Ég óska eftir upplýsingum og gögnum um hvort umræddur kvikmyndatökumaður og/eða tökulið hans hafi fengið leyfi Fangelsismálastofnunar til að taka upp í fangelsinu Kvíabryggju og ræða við fanga um Magnús, Ólaf og Sigurð,“ segir í bréfi umboðsmanns til fangelsismálastjóra.
Ef svo er, óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um á hvaða sjónarmiðum það leyfi hafi verið veitt og hvernig það samrýmist 16. gr. reglugerðar nr 961/2005. „Í þessu samhengi hef ég einnig í huga friðhelgi einkalífs fanga,“ skrifar umboðsmaður.
„Ég óska jafnframt eftir að fá afhent öll gögn um tilefni komu og dvalar ofangreinds tökuliðs í fangelsinu Kvíabryggju, þ.m.t. beiðni um að fara í fangelsið og afgreiðslu á henni og um viðtöl við einstaka fanga og samþykki á því hvar myndataka mætti fara fram í fangelsinu. Þá óska ég eftir upplýsingum um hvernig þeim föngum sem vistaðir voru í fangelsinu Kvíabryggju, þegar tökuliðið kom þangað, var kynnt koma þeirra og heimildir til athafnar þar.“
Kvörtun þremenninganna er í fjórum liðum og snýst um ummæli Páls fangelsismálastjóra í fjölmiðlum á síðasta ári, m.a. í frétt Morgunblaðsins um að beiðnir hafi komið frá ákveðnum föngum um að fá að neyta rauðvíns og annarra áfengra drykkja með mat í fangelsinu.