Sama launastefna og fyrir hrun

mbl.is/Styrmir Kári

Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands mótmælir harðlega ákvörðun kjararáðs þar sem laun dómara eru hækkuð um 300.000 – 560.000 kr á sama tíma og laun hins almenna launamanns hafa hækkað um um það bil 30.000 kr.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem sambandið sendi frá sér í gærkvöldi.

„Seðlabanki Íslands hefur ítrekað bent á að ígildi 10% af launahækkun dómaranna geti valdið efnahagslegum hamförum í samfélaginu hvað þá tíföld sú upphæð! Það gefur auga leið að vonlaust er að byggja upp samfélag með jafnmikilli stéttarskiptingu eins og raun ber vitni. Ákvarðanir um að deila meiri gæðum til þeirra sem meira hafa er óásættanlegt,“ segir í tilkynningunni.

Segir miðstjórn sambandsins að hækkun launa í stjórnunarstöðum ýmissa fyrirtækja hér landi bendi til þess að sama launastefna sé viðhöfð og áður en íslenskt efnahagskerfi hrundi. Þá hafi sést að ofurlaunastefna fyrirtækjanna hafði ekkert með gæði fyrirtækjanna að gera og því sé ekki ástæða til að ætla að svo sé nú.

„Miðstjórn RSÍ tekur undir áskorun ASÍ til stjórnvalda um að tekið verði upp alvöru hátekjuskattur á ofurlaun. Það þarf að tryggja jöfn skipti í samfélaginu og ofurlaunastjórnendur sem eru aflögufærir eiga að leggja meira til samfélagsins. Jöfn skipti á þjóðarkökunni er forsenda sáttar í samfélaginu til lengri tíma! Miðstjórn RSÍ skorar á stjórnvöld að skipa fulltrúa launafólks af almennum vinnumarkaði í kjararáð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert