Eldar sem komu upp annars vegar í iðnaðarhúsi við Hólmaslóð í Reykjavík og hins vegar við Lækjarsmára í Kópavogi hafa verið slökktir samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Töluvert mikill eldur var í iðnaðarhúsinu við Hólmaslóð 4 en í húsnæðinu eru með starfsemi meðal annars fyrirtækin Vélar og skip ehf. og Brimrún ehf. Eldurinn í Lækjarsmára 76 var minni. Enginn mun hafa verið í húsnæðinu við Hólmaslóð og íbúar í Lækjarsmáranum höfðu komið sér út af sjálfsdáðum þegar slökkviliðið kom á vettvang.
Fréttir mbl.is: