Alþingi kemur aftur saman á morgun eftir tæplega mánaðarlangt frí. Húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra, verða í brennidepli á fyrri hluta vorþingsins, en meðal mála sem búast má við að tekist verði á um er einkavæðing bankanna og nýr búvörusamningur milli ríkisins og bænda.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þinghópur Sjálfstæðisflokksins hafi margt að athuga við húsnæðisfrumvörp félagsmálaráðherra.
Í umfjöllun um þinghaldið í Morgunblaðinu í dag telur Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, mikilvægast að fá umræður um stjórnarskrárbreytingar aftur inn í þingsal Alþingis og Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að Samfylkingin muni leggja áherslu á húsnæðismálin á vorþinginu.