Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í Hafnarfirði í dag. Lagt var hald á samtals um 75 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar.
Karlmaður á þrítugsaldri játaði aðild í öðru málinu og karl á fertugsaldri í hinu en málin tengjast ekki. Í báðum tilvikum var um að ræða kannabisræktun í heimahúsi.
Í gær kom fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi að undanförnu framkvæmt húsleitir á mörgum stöðum í Hafnarfirði og lagt hald á talsvert af kannabisefnum, m.a. tugi kannabisplantna á ýmsum stigum ræktunar, og enn fremur ætlað amfetamín.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.