Ísland er í þrettánda sæti lista Transparency International yfir spillingu meðal ríkja í heiminum. Hin norrænu ríkin: Danmörk, Finnland og Svíþjóð verma efstu sætin þrjú, það eru minnst spilltu ríki heims og Noregur er í 5. sæti. Ísland féll niður um eitt sæti frá árinu 2014 og lendir því í 13. sæti 2015, með alls 79 stig.
Hér hefur orðin markverð breyting frá árunum 2005 og 2006, þegar Ísland var í 1. sæti listans, með 95-97 stig. Á árinu 2008 var Ísland komið í 7. sætið og 90 stiga múrinn fallinn. Síðast liðin 8 ár hefur leiðin legið niður á við og árið 2013 féll 80 stiga múrinn þegar Ísland lenti í 12. sæti, með aðeins 78 stig, segir í fréttatilkynningu frá samtökunum Gagnsæi, samtök gegn spillingu.
Í fréttatilkynningu frá Transparency International kemur fram að spilling sé enn útbreidd en að jákvæðar blikur séu á lofti. Haft er eftir formanni Transparency International, José Ugaz, að spillingarvísitalan 2015 sýni greinilega að spilling sé útbreidd um allan heim, en að árið 2015 hafi almenningur einnig haldið út á stræti og torg til að mótmæla spillingu. Fólk víðsvegar um heiminn hafi sent sterk skilaboð til valdhafa sinna um að tími sé kominn til að uppræta meiriháttar spillingu.
„Svokölluð „meiriháttar spilling” er skilgreind sem misnotkun valds á æðstu stigum, þar sem fáir geta hagnast á kostnað margra og haft alvarlegar og útbreiddar afleiðingar er skaða jafnt einstaklinga sem og heilu samfélögin.
Spillingarvísitala Transpareny International er byggð á áliti sérfræðinga sem og almennri skynjun á spillingu í opinberum stofnunum og stjórnsýslu. Þau lönd sem fá hæsta einkunn eiga það sameiginlegt að þar er stjórnsýsla opin og almenningur getur dregið stjórnendur til ábyrgðar. Lægstu einkunnir fá lönd þar sem mútur eru algengar, refsileysi ríkir gagnvart spillingu og opinberar stofnanir sinna ekki hlutverki sínu í þágu borgaranna,“ segir ennfremur í fréttatilkynningu.
Spillingarvísitalan nær að þessu sinni yfir 168 lönd og hlutu 2/3 þeirra 50 stig eða færri. (Stigaskalinn nær frá 0, þar sem spilling er talin mjög algeng upp í 100, þar sem spilling er talin lítil sem engin.)
Danmörk lenti í efsta sæti og er því talið vera það land í heiminum þar sem minnst spilling er annað árið í röð, en Norður-Kórea og Sómalía lentu í neðstu sætunum með aðeins 8 stig hvort.
Efstu ríkin eiga það sameiginlegt að þar er fjölmiðlafrelsi; gott aðgengi að fjárlagaupplýsingum svo að almenningur viti hvaðan peningarnir koma og í hvað þeim er varið ; sýnd heilindi í starfi þeirra sem fara með almennt vald; dómskerfi sem dregur fólk ekki í dilka eftir ríkidæmi eða fátækt og starfar ennfremur algjörlega sjálfstætt gagnvart löggjafar- og framkvæmdavaldinu.
Löndin sem hafna neðst á listanum eiga það aftur á móti sameiginlegt að þar geisa oftar styrjaldir, stjórnskipan er veik, dómskerfið slakt og fjölmiðlar ósjálfstæðir.
Þau lönd sem hafa lækkað mest á undanförnum 4 árum eru Líbýa, Ástralía, Brasilía, Spánn og Tyrkland. Aftur á móti hafa Grikkland, Senegal og Bretland bætt sig mest, segir í tilkynningu.