Sjómaður af norsku loðnuskipi, sem varðskipið Þór sótti fyrr í dag um 115 sjómílur austur af Norðfirði, er kominn á Landspítalann. Siglt var með manninn til Neskaupstaðar þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hann. Flogið með hann til Hafnar í Hornafirði þar sem hann var fluttur yfir í sjúkraflugvél sem fór með hann til Reykjavíkur.
Frétt mbl.is: Sótti hjartveikan sjómann