Bílstjóri strætisvagns notaði síma undir stýri nánast viðstöðulaust á háannatíma á föstudag. Þetta segir faðir barns sem var í vagninum í samtali við mbl.is. Barnið tók meðfylgjandi myndir þegar það var á leið af íþróttaæfingu.
Faðirinn, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir að barnið hafi ekki getað orða bundist við matarborðið eftir að hafa tekið sér far með vagninum síðdegis á föstudag. Mun bílstjórinn meðal annars hafa verið á Facebook í símanum og sent úr honum textaskilaboð á meðan ferð barnsins stóð, eða í rúmar tíu mínútur, en um er að ræða leið númer 28.
Frétt mbl.is: Má nota snjallsíma undir stýri?
„Það var aðeins í eitt skipti sem hann lagði símann frá sér og það var þegar hann var að fara í gegnum hringtorg til að hafa báðar hendur á stýrinu. Annars var hann alltaf með símann í hendinni,“ segir viðmælandi í samtali við mbl.is. Hann segir að sorglegt sé að horfa upp á þetta eftir umræðu um hegðun vagnstjóra undanfarna daga.
Jóhannes Rúnarsson forstjóri Strætó segir í samtali við mbl.is að atvik sem þessi gerist því miður annað slagið. Hann telur að þeim fari ekki fjölgandi. Viðurlög við svona brotum séu skýr innan fyrirtækisins.
„Þetta er skýrt í reglum vagnstjóra og auðvitað í lögum. Þeir fá áminningu og ef brotið er ítrekað þá getur það þýtt starfsmissi. Við tökum alltaf á því þegar svona kemur upp og það er gott að fá ábendingar frá farþegum því þá getum við gripið til ráðstafana.“
Rúmlega hálft ár er síðan strætisvagn og fólksbíll lentu í árekstri á Sæbrautinni. Að sögn farþega um borð í strætisvagninum var bílstjórinn að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar þegar hann ók vagninum á fólksbíl.
Frétt mbl.is: Talaði í síma án handfrjáls búnaðar
Talsverð umræða hefur verið að undanförnu um hættur þess að bílstjórar tali í síma undir stýri, sendi smáskilaboð og taki myndir og myndbönd með farsímum sínum.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði á miðvikudag að þetta væri áhyggjuefni. Í ráðuneytinu sé nú verið að skoða hert viðurlög, hækkun sekta og fleira í tengslum við ólögmæta snjallsímanotkun ökumanna.
Frétt mbl.is: Skoða að hækka sektir verulega