Maðurinn sem var handtekinn af lögreglunni á Suðurlandi grunaður um vinnumansal er frá Sri Lanka.
Konurnar tvær sem grunur leikur á um að hann hafi haldið í vinnuþrælkun eru einnig frá Sri Lanka. Þetta staðfesti fyrirtækið Icewear við mbl.is.
Eiginkona mannsins er sömuleiðis frá Sri Lanka og hefur einnig starfað hjá Icewear. Heimili hjónanna má sjá á meðfylgjandi mynd. Talið er konurnar tvær hafi búið í kjallara hússins.
Maðurinn var undirvertaki hjá prjónaverksmiðju Icewear í bænum og hefur Víkurprjón rift samningum við verktakafyrirtækið vegna málsins.