Þrjár konur frá Srí Lanka fá stöðu þolenda mansals. Frá þessu greinir Fréttablaðið í dag og segir einnig að fréttastofa 365 hafi fyrir þessu öruggar heimildir.
Líkt og áður hefur komið fram fundust tvær konur við húsleit hjá fyrirtækinu Vonta International á Víkurbraut í aðgerðum lögreglu á fimmtudag í síðustu viku og eru nú í skjóli yfirvalda.
Þriðja konan sætti einnig illri meðferð eiganda Vonta International ehf, segir í frétt Fréttablaðsins.
Frétt mbl.is: „Við erum með leirinn á borðinu“