Vill endurskoðun vopnalaga

Frá keppni á Reykjavíkurleikunum í bogfimi.
Frá keppni á Reykjavíkurleikunum í bogfimi. Mynd/Sportmyndir.is

Stjórn Bogveiðifélag Íslands hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með að heildarendurskoðun á vopnalögum fari ekki fram.

„Í dag þá hamla núverandi lög um bogaeign útbreiðslu á allri bogfimi hverskonar á Íslandi. Ef horft er til Norðurlandanna og eftir nýjustu breytingar í vopnalögum ESB (2015) þá er bogi og ör og allt sem þeim tilheyrir ekki tilgreint sem vopn heldur sem íþróttatæki,“ segir í tilkynningu frá stjórninni.

Lítið orðið ágengt 

Hún segist hafa verið í samskiptum við ráðuneyti og þingmenn síðan 2010 til 2011 um að koma inn breytingum er varðar bogfimi en lítið orðið ágengt.

„Bogveiðifélag Íslands hvetur ráðuneyti og þingmenn að koma þessu stóra máli sem heildar endurskoðun á vopnalögum er, sem fyrst á dagskrá þingsins. En sátt var um þau drög að frumvarpi þegar þau komu frá nefnd um endurskoðun laganna 2009,“ segir í tilkynningunni.

Nánari upplýsingar um Bogveiðifélag Íslands má finna hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert