Vilja manninn í gæsluvarðhald

mbl.is/Eggert

Lögregla hefur farið fram á að karlmaður sem var handtekinn í gær í tengslum eldsvoðann á Grettisgötu 87 á mánudagskvöld verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Maðurinn var handtekinn vegna annars máls í gærkvöldi. 

Lögregla mun einnig yfirheyra annan mann í tengslum við málið. 

Tæknideild lögreglu lauk rannsókn á vettvangi í dag og hefur afhent vátryggingafélögum vettvanginn. Verið er að vinna úr gögnum sem safnað var í morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert