Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu vegna þriggja bíla áreksturs á Skothúsvegi, eða þar sem brúin liggur yfir Reykjavíkurtjörn.
Enn er of snemmt að segja til um meiðsli fólksins en ljóst er að einhverjir verða fluttir á slysadeild til athugunar.
Uppfært kl. 19.49
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um áreksturinn kl. 19.10 í kvöld.
Þrír sjúkrabílar og einn tækjabíll voru sendir á vettvang og voru þrír fluttir til skoðunar á slysadeild. Ekki er talið að meiðsli þeirra séu alvarleg.