Hefur aldrei átt né selt kvóta

Lilja Rafney Magnúdóttir.
Lilja Rafney Magnúdóttir. mbl.is/Golli

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður (VG) hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla utanríkisráðherra um að hún hafi ekki gert grein fyrir hagsmunum sínum um kvótasölu sína og fjölskyldunnar. Lilja Rafney segir að hvorki hún né eiginmaðurinn hafi átt eða selt kvóta.

Yfirlýsing Lilju Rafneyjar Magnúsardóttir alþingismanns

„Vegna orða Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í morgunútvarpi RÚV um að undirrituð hefði ekki gert grein fyrir hagsmunum sínum um kvótasölu sína og fjölskyldunnar þegar hún barðist fyrir breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu á síðasta kjörtímabili vil ég að eftirfarandi komi fram:

Lilja Rafney og eiginmaður henna hafa aldrei átt eða selt fiskveiðikvóta. Fósturfaðir hennar var hættur smábátaútgerð sökum aldurs þegar hún tók sæti á Alþingi 2009 og faðir hennar, sem var sjómaður og átti smábát, lést árið 1997. Engir beinir eða óbeinir einkahagsmunir lágu því undir þegar Lilja Rafney barðist fyrir breytingum á kvótakerfinu, aðeins hagsmunir almennings. Með orðum sínum um annað leitast utanríkisráðherra við að afvegaleiða umræðuna um hagsmuni forsætisráðherra og eiginkonu hans og heldur fram helberum ósannindum um undirritaðan þingmann í því skyni að gjaldfella málflutning hans á þingi og í þjóðfélagsumræðunni og drepa á dreif gagnrýni á forsætisráðherra.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert