Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur sent samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni til Philippe konungs Belgíu vegna hryðjuverkaárásanna í Brussel í dag.
Í tilkynningu frá skrifstofu forsetans segir að í kveðjunum komi fram að samúð Íslendinga sé með fjölskyldum þeirra sem biðu bana, ættingjum þeirra og vinum, sem og þeim sem sáriar eru.
„Hryðjuverkaárásirnar í dag séu atlaga að lýðræði okkar og siðmenningu, mannréttindum, jafnrétti og frjálsri umræðu.
Brýnt sé að standa vörð um mannúð og bræðralag, lýðræði og jafnrétti sem skipa öndvegið í samfélagsskipan okkar, menningu og sögu.“