Óvíst hvort vopnaburð þarf áfram

Vopnaðir lögreglumenn og sérsveitarmenn við gæslu á Keflavíkurflugvelli.
Vopnaðir lögreglumenn og sérsveitarmenn við gæslu á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

„Það verður farið yfir málið og það skoðað út frá því áhættumati sem verður fyrirliggjandi,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.

Í dag fer fram fundur fulltrúa lögreglustjórans á Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og innanríkisráðuneytis um þörfina fyrir áframhaldandi vopnaða gæslu á Keflavíkurflugvelli. Gæslan var aukin um miðja síðustu viku í kjölfar hryðjuverkanna í Brussel í Belgíu.

Fram til þessa hafa sex vopnaðir lögreglumenn og sérsveitarmenn verið við gæslu á Keflavíkurflugvelli, ásamt sérsveitarmanni með sprengjuleitarhund eftir því sem við hefur átt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert