Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun funda með formönnum ríkisstjórnarflokkana í dag en hann kom til landsins í morgun. Þetta kemur fram á Vísi.
Í samtali við fréttastofu 365 sagði Ólafur Ragnar stöðuna sem komin sé upp alvarlega og að „forseti þurfi að vera til staðar og þurfi að standa sína plikt.“
Forsetinn var staddur í Bandaríkjunum í einkaerindum en flýtti heimför sinni.
Þá kom Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, einnig heim í morgun frá Bandaríkjunum. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í morgun verður það hans fyrsta verk í dag að funda með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra, um stöðu stjórnarsambandsins. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun sagði Sigmundur samstarf ríkisstjórnarflokkanna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, ekki hanga á bláþræði.
„Nei, samstarfið hangir ekki á bláþræði vegna umræðu núna frekar en umræðu áður sem oft hefur verið hörð. Samstarf hangir eingöngu á bláþræði ef menn vilja ekki starfa saman.“
Í samtali við mbl.is sagðist Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar, ekki hafa heyrt af áætlunum um fund á milli forsætisráðherra og forseta Íslands en sagðist gera ráð fyrir því að fundur Sigmundar og Bjarna færi fram fyrir hádegi.