Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins stendur til að boða til kosninga í haust. Ræddu stjórnarflokkarnir laugardaginn 8. október í þessu sambandi.
Samkvæmt heimildum mbl.is áttu þingflokksfundir bæði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að hefjast kl. 18.45.
Frétt mbl.is: Sjálfstæðismenn funda klukkan 18.45
Sigurður Ingi Jóhannsson hefur yfirgefið Stjórnarráðið þar sem hann fundaði með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Sigmundur er enn í Stjórnarráðinu.
Uppfært kl. 20.41:
„Við viljum kjósa strax, þar sem þjóðin vill geta gert upp reikningana. Við hjá VG erum prýðilega undirbúin undir kosningar. Fylgið er á uppleið, við erum í góðum málum. Við erum með góðan og traustan formann, sem nýtur mikils trausts hjá þjóðinni, og stendur upp úr eins og fjall í landslagi íslenskra stjórnmála. Það er langbest fyrir þjóðina að geta kosið strax.“
Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Hann sagðist ekki biðja um þá leið að kjósa í haust.
Uppfært kl. 20.34:
„Þessi Tortóla-ásynd lagast ekki þótt einn fari úr ríkisstjórninni. Það skortir traust. Það er aðeins hægt að lappa upp á það með kosningum og nýrri ríkisstjórn,“ sagði Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í þinghúsinu.
Hún sagði að það væri hennar mat að það væri ekki stuðningur við þá leið innan þingflokks Samfylkingarinnar að bíða fram á haust með kosningar. Krafan væri að kosið yrði sem fyrst.
Uppfært kl. 20.01:
Þetta gengur ágætlega, þetta er allt að koma,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, rétt í þessu.
Uppfært kl. 19.20:
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa boðið fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna á fund í þinghúsinu núna klukkan hálf átta. Þetta staðfesta Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar og Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna í sjónvarpsfréttum RÚV.
Uppfært kl. 19.04:
Samkvæmt Rúv kemur Ásmundur Einar Daðason í stað Sigurðar Inga í ríkisstjórn.
Uppfært kl. 18.49:
Samkvæmt Kjarnanum verður Sigurður Ingi, varaformaður Framsóknarflokksins og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, næsti forsætisráðherra Íslands. Þá verður ný ríkisstjórn kynnt í kvöld.