Sigurður Ingi Jóhannsson, mun gegna embætti forsætisráðherra. Þetta staðfesti Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í þinghúsinu nú í kvöld.
Stjórnarflokkarnir stefna að því að kynna nýja ríkisstjórn nú í kvöld, en ekki er ennþá búið að raða í aðra ráðherrastóla. Að sögn Höskuldar, eru þingflokkarnir komnir vel á veg með þá vinnu.
Þá er Lilja Alfreðsdóttir ráðherraefni Framsóknarflokksins að sögn Höskuldar. Ekki er búið að ganga frá hvaða ráðherraembætti Lilja kann að hljóta, en hún hefur verið efnahagslegur ráðgjafi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fráfarandi forsætisráðherra.
Þá kom fram í máli Höskuldar að honum fyndist Sigmundur Davíð ekki hafa verið nógu skýr í máli um hvort hann ætlaði að sitja áfram á þingi.
Ríkisstjórnarflokkarnir boðuðu formenn stjórnarandstöðuflokkanna á fund í þinghúsinu klukkan hálf átta í kvöld, eftir að hafa áður fundað með eigin þingflokkum. Fundir þingflokkanna áttu upphaflega að hefjast klukkan sex, en nokkur seinkunn varð á fundunum sem ekki hófust fyrr en 18.45, en þar áður hafði Sigurður Ingi setið á fundi í stjórnarráðinu með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fráfarandi forsætisráðherra, frá því klukkan þrjú í dag.
Mikil eftirvænting ríkti í Alþingishúsinu nú síðdegis og í kvöld, þar sem á fimmta tug fjölmiðlamanna voru saman komnir og biðu þess að blaðamannafundur hefjist.
Mikið var fundað í þinghúsinu og stjórnarráðinu í dag. Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa ítrekað í dag að ekki sé nóg að Sigmundur Davíð segi af sér. Sagði Píratinn Helgi Hrafn Gunnarsson, m.a. stjórnmálin vera rúin trausti og að hugsanleg tillaga um að kosningar verði haldnar í haust sé einfaldlega ekki nóg.