Vantrauststilllaga stjórnarandstöðunnar var felld á alþingi rétt í þessu. Féllu atkvæði þannig að 38 stjórnarþingmenn felldu fyrri hluta tillögunnar þar sem vantrausti var lýst á ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar.
37 atkvæði stjórnarþingmanna felldu síðari hluta tillögunnar um að þing yrði rofið og gengið til kosninga nú og var Unnur Brá Konráðsdóttir eini stjórnarþingmaðurinn sem studdi þann hluta tillögunnar.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði já við þeirri tillögu stjórnarandstöðunnarað rjúfa þing og boða til kosninga, eftir að hafa áður sagt nei við vantrauststillögu á ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar.
Unnur Brá gerði grein fyrir atkvæðum sínum: „Ég er sjálfstæðismaður og ég get ekki annað en barist fyrir því að þau grunngildi séu við lýði. Ég mun því ekki styðja stjórnarandstöðuna,“ sagði Unnur Brá er hún sagði nei við vantrauststilllögunni.
Þeir þingmenn stjórnarandstöðunnar sem gerðu grein fyrir sératkvæðu sínu spurðu ítrekað við hvað þingmenn ríkisstjórnarinnar væru hræddir um leið og þeir ítrekuðu að gefa þyrfti út tímasetningu fyrir kosningarnar.
„Fólkið krefst kosninga með réttu,“ sagði Ólína Kerúlf Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar, um leið og hún sagði já við því að þing væri rofið.
„Það er þjóðin sem kallar eftir siðbót,“ sagði Óttar Proppé þingmaður Bjartrar framtíðar um leið og hann sagði já við því að þing væri rofið.