Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur er hættur við að fara í forsetaframboð, þetta staðfestir hann í viðtali við mbl.is. En í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í morgun sagði Þorgrímur að áhuginn sinn á embættinu hafi fari dvínandi.
„Ég er ekki að fara í framboð, það er alveg á hreinu,“ segir Þorgrímur. og spyr hvort hann hafi ekki orðað grein sína nógu skýrt.
„Brátt eru liðnir fimm mánuðir frá því ég var spurður, algjörlega óvænt, hvort ég hefði hugsað mér að sækjast eftir því að verða næsti forseti Íslands. Af heiðarleika og hreinskilni svaraði ég játandi. Á síðustu vikum hefur áhuginn á embættinu fjarað út, af margvíslegum ástæðum,“ segir í grein Þorgríms.
„Mér fannst þetta fjara út og mig langar frekar að halda áfram að sinna þeim málefnum sem ég nefni í greininni,“ segir Þorgrímur.
Í júní, þegar forsetakosningarnar fara fram, standi hugur hans fyrst og fremst til að leggja sitt af mörkum til að Ísland standi sig sem best á EM í Frakklandi. Þá vilji hann einnig halda áfram að skrifa barnabækur og gera sitt besta til að hreyfa við ungmennum með fyrirlestrum sínum „Verum ástfanginn af lífinu“.
„Ég mun halda áfram að skrifa greinar um þau málefni sem mér finnst skipta máli í samfélaginu, þannig að mín rödd heyrist e.t.v. áfram þó að ég sé ekki í framboði.“
Þorgrímur skrifar grein sinni að hann hafi fullan skilning á því að fólk eigi almennt erfitt með að sjá einhvern feta í fótspor Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta Ísland. „Afstaða fólks til embættisins hefur mótast á þeim 20 árum sem Ólafur hefur starfað sem forseti og þess vegna mun umræðan fram að kosningum án efa litast af því hvaða sýn menn hafa á störf núverandi forseta.“
Sjálfur sé hann sömu skoðunar og Vigdís Finnbogadóttir. „Að forseti Íslands eigi að hafa sem minnst pólitísk afskipti, nema þau sem stjórnarskráin kveður á um. Og málskotsrétturinn ætti fyrst og síðast að vera í höndum fólksins í landinu. Þar fyrir utan er galið að næsti forseti þjóðarinnar verði hugsanlega kosinn með innan við 15% atkvæði. Því þarf að breyta.“