Andri Snær Magnason rithöfundur mun bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Þetta staðfestir Andri Snær, sem segir í samtali við mbl.is að hann muni á morgun tilkynna framboð sitt til embættis forseta Íslands.
„Ég verð með opin fund í Þjóðleikhúsinu á morgun klukkan fimm og þar ætla ég að kynna það sem ég tel mig hafa fram að færa,“ segir Andri Snær.