Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, liggur enn undir feldi og hugleiðir forsetaframboð. Þetta staðfesti Guðni í samtali við mbl.is.
„Þetta er spennandi tilhugsun og við getum sagt að ég hafi fengið feldinn lánaðan hjá Andra [Snæ Magnasyni].“
Spurður hvenær hann muni kunngera ákvörðun sína, segir Guðni: „Það er svo margt sem þarf að huga að. Þetta er nú með stærri ákvörðunum sem maður tekur, þannig að ég bið bara fólk að sýna smá biðlund.“