Miðlunartillaga ríkissáttasemjara vegna kjaradeilu starfsmanna álversins í Straumsvík var samþykkt með 61,5% atkvæða. 330 voru á kjörskrá og greiddu 282 atkvæði.
173 sögðu já, 105 nei (37,23%) og fjórir seðlar voru auðir.
Stjórn ISAL samþykkti tillöguna.
Ríkissáttasemjari taldi ljóst að frekari sáttaumleitanir um þau atriði sem út af stóðu í þessari deilu myndi ekki bera árangur. Sáttasemjari lagði því fram miðlunartillögu til lausnar deilunni.
Frétt mbl.is: Miðlunartillaga í álversdeilu