Einn Íslendingur er meðal þeirra sem gekk til liðs við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams á árunum 2013 til 2014. Þetta kemur fram í skjölum um hryðjuverkasamtökin sem lekið var til fréttastofanna NBC og Sky News. Skjölin greina frá upplýsingum um 4.000 liðsmenn samtakanna frá 71 landi.
Í desember 2014 var sagt frá því að Sýrlendingur sem starfaði áður með Ríki íslams hafi haldið því fram að íslenskur kvikmyndagerðarmaður væri meðal liðsmanna hryðjuverkasamtakanna og taki meðal annars myndskeið fyrir samtökin. Hélt hann því fram að Íslendingurinn tæki fagmannleg myndskeið sem notuð eru til þess að vekja athygli á starfi samtakanna og fá nýliða til starfa.
Ekki er vitað hvort að um sama mann sé að ræða.
Í úttekt NBC á skjölunum má finna margt áhugavert um þá sem ákváðu að ganga til liðs við samatökin. Meðalaldurinn var 26-27 ár en í hópnum mátti einnig finna unglinga og menn á sextugsaldri. Um 40 voru 15 ára eða yngri.
Flestir þeirra komu frá Sádi Arabíu eða 797. Þá komu 640 frá Túnis og 260 frá Marokkó. Í grein NBC segir að erlendu liðsmennirnir hafi þó komið frá öllum heimshornum, 167 frá Kína, einn frá Íslandi, 13 frá Ástralíu og tveir frá Trinidad og Tobago.
Um 10% komu frá vestrænum ríkjum, þar af 57 frá Bretlandi og 14 frá Bandaríkjunum. Flestir þeirra sem komu frá vestrænum ríkjum voru Frakkar eða 128 talsins og 80 voru Þjóðverjar.
Þá voru 60% liðsmannanna einhleypir en 30% giftir og áttu þeir 2.000 börn í heildina.
Umfjöllun NBC í heild sinni má sjá hér.