Jón Ásgeir Jóhannesson segir „alrangt“ að banki hafi leitað að peningum sem fengust fyrir sölu á snekkju sem var í eigu Jóns. Hann segir málið einfalt: Snekkjan var seld og bankinn fékk peninginn.
„Þetta er mjög einfalt, snekkjan var seld og Kaupþing fékk peninginn,“ segir Jón Ásgeir í samtali við mbl.is. Hann segir það sama hafa átt sér stað með skíðaskála sem var í hans eigu. Skálinn hafi verið seldur og Íslandsbanki fékk peninginn. Hann segir engan banka, svo hann viti, hafa efast um að peningurinn fyrir snekkjuna hafi skilað sér.
Frétt mbl.is: Leituðu snekkju Jóns
Í umfjöllun Kjarnans í dag er rifjað upp að slitastjórn Glitnis hafi látið frysta allar eigur Jóns Ásgeirs í Bretlandi árið 2010. Samkvæmt frystingarbeiðninni, sem Kjarninn hefur undir höndum og aðgengileg er á netinu, var slitastjórnin meðal annars að leita að afrakstri sölu snekkju, sem bar heitið OneOOne og var skráð til heimilis á Cayman-eyjum.
Samkvæmt frystingartilskipuninni var Jóni Ásgeiri sérstaklega gert að veita upplýsingar um sölu á snekkju sem nefndist OneOOne í eigu Piano Holding, og hafði verið skráð á Cayman-eyjum, sem og skíðaskála í Courcheval.
Kjarninn og Stundin, í samstarfi við Reykjavik Media, birtu í morgun fréttir sínar upp úr Panamaskjölunum þar sem greint er frá viðskiptum Ingibjargar Pálmadóttur og eiginmanns hennar, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, í gegn um fyrirtækið Guru Invest sem staðsett er í Panama.