Fékk ekki að fljúga vegna ölvunar

Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.
Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Farþegi sem var á leið í flug frá Keflavíkurflugvelli til Alicante um helgina varð af ferðinni vegna ölvunar og óspekta, fyrst í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og síðan inni í flugvélinni áður en hún tók á loft.

Viðkomandi æstist enn frekar við að fá ekki að fara með vélinni svo grípa varð til þess ráðs að flytja hann á lögreglustöð til vistunar þar til af honum bráði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert