Lögregla hefur verið kölluð að húsi Bjarna Benedikssonar fjármálaráðherra, eftir að lítill hópur mótmælenda safnaðist saman á bak við hús ráðherrans.
Að sögn lögreglu eru um tíu mótmælendur á staðnum og var lögregla kölluð á staðinn til að tryggja ráðherranum og fjölskyldu hans frið á heimili þeirra.