Fjallað er um tengsl Dorritar Moussaieff, eiginkonu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands, við aflandsfélög í erlendum miðlum, þar á meðal í netútgáfum Guardian og Süddeutshe Zeitung. Hún hefur tengst minnst fimm bankareikningum í Sviss og að minnsta kosti tveimur aflandsfélögum. Fjölmiðillinn Reykjavík Media greindi frá þessu í gær.
Í skriflegu svari sem mbl.is barst frá forsetaritara í gærkvöldi kom fram að Ólafur Ragnar þekki ekki til fjárhagstengsla eiginkonu sinnar við foreldra hennar eða aðra í fjölskyldu hennar.
„Í svari [Ólafs Ragnars] til blaðamanns Guardian fyrr í dag kom fram að hann hefði aldrei heyrt um þau atriði sem nefnd voru í fréttinni né hefði hann nú eða nokkru sinni haft vitneskju um fjárhagstengsl konu sinnar við foreldra sína eða aðra í fjölskyldunni; né um áform foreldra hennar að þeim látnum. Hann vissi því ekkert um málið.
Jafnframt áréttaði forseti að hann hefði ávallt verið mjög gagnrýninn á aflandsfélög og skattaskjól, og í áratugi talað fyrir réttlátu og sanngjörnu skattkerfi,“ sagði í svari forsetaritara.
Ólafur Ragnar neitaði því alfarið í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNN að hann, eiginkona hans eða fjölskylda hans tengist aflandsfélögum. „Nei, nei, nei, nei, nei,“ sagði forsetinn.