„Þetta er með þeim stærri sem ég hef fengið mjög lengi,“ segir Georg Arnarson á línubátnum Blíðu VE 26, sem fékk þennan myndarlega þorsk á línu nærri Vestmannaeyjum í gær.
Hann segir að þorskurinn hafi ekki verið vigtaður en hann hafi þó verið vel yfir 30 kílóum.
„Hann tók vel í þegar ég var að lyfta honum um borð og ég mátti hafa mig allan við. En sem betur fer var ég að draga hann inn undan vindi og undan straumi, annars hefði línan sennilega slitnað,“ segir Georg í Morgunblaðinu í dag.