Eyða þarf óvissu um sýningu á safnaeign ASÍ

Stjórn SÍM er ósátt við að ekki hafi verið haft …
Stjórn SÍM er ósátt við að ekki hafi verið haft samráð við hagsmunaaðila varðandi söluna á Ásmundarsal. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

SÍM telur brýnt að eyða óvissu um hvernig safnaeign ASÍ skuli sýnd í framtíðinni, og ítrekar í yfirlýsingu sem stjórn SÍM sendi frá sér, óánægju sína með að ekkert samráð hafi verið haft við hagsmunaaðila varðandi söluna á Ásmundarsal

„Líkt og áður hefur komið fram harmar stjórn SÍM sölu ASÍ á Ásmundarsal. Nú ríkir óvissa um það hvernig safneign ASÍ verður sýnd til framtíðar litið. Stjórn SÍM telur brýnt að þessari óvissu verði eytt sem fyrst, enda tilheyra Listasafni ASÍ mörg af fegurstu verkum íslenskrar myndlistarsögu,“ segir í yfirlýsingunni.

Tryggja þurfi safneigninni nýtt sýningarrými svo unnt sé að sýna verkin. Fram hafi komið hjá ASÍ að nota eigi ágóðan af sölu Ásmundarsals til að koma upp nýju sýningarrými fyrir listaverkaeign sambandsins.

Auglýsa eftir raunhæfri, tímasettri áætlun

„Að mati stjórnar SÍM verður að koma fram raunhæf, tímasett áætlun um það hvenær nýtt sýningarrými verður tekið í notkun. Annað er vanvirðing við listasafn ASÍ og stofngjöf Ragnars í Smára. Stjórn SÍM auglýsir eftir slíkri áætlun og mun fylgja því eftir opinberlega að hún liggi fyrir á þessu ári.“ 

SÍM ítrekar þá óánægju sína með að ekki hafi verið haft samráð við hagsmunaaðila í aðdraganda sölunnar og lýsir ennfremur furðu sinni yfir því hve skamman tíma söluferlið tók. Tæp vika hafi liðið frá því að Ásmundarsalur var auglýstur til sölu og þar til hann var kominn í hendur nýrra eigenda. Eðlilegra hefði verið að auglýsa tilboðsfresti opinberlega vegna söluferlisins. 

„Stjórn SÍM óskar nýjum eigendum Ásmundarsals, fjárfestunum Sigurbirni Þorkelssyni og Aðalheiði Magnúsdóttur, velfarnaðar í fyrirhugaðri menningarstarfsemi í húsnæðinu. Þeim eru þakkir skildar fyrir að takast á hendur þá ábyrgð sem fylgir þessu einu sögufrægasta húsi íslenskrar listasögu, sérstaklega fyrir þá fyrirætlan að virða ósk Ásmundar Sveinssonar um að myndlistartengd starfsemi verði ávallt hluti af húsinu. Fyrirhuguð starfsemi nýrra eigenda, sem kynnt hefur verið í fjölmiðlum, virðist eyða þeirri óvissu sem uppi var varðandi framtíðarnotkun Ásmundarsals og hvort hann yrði áfram notaður sem myndlistarrými eða í öðrum, óskyldum tilgangi.“

Jafnframt þakkar stjórn SÍM öllum þeim sem sýndu málinu áhuga, en alls skrifuðu rúmlega 1500 manns undir áskorun SÍM til ASÍ um að endurskoða þá ákvörðun að selja Ásmundarsal.

Listin áfram í Ásmundarsal

Endurskoði sölu á Ásmundarsal

Vilja ekki lundabúð í Ásmundarsal

Forsendur safnrekstrar brostnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert