Ljósmæður ávísi getnaðarvarnarlyfjum

Hingað til hafa ljósmæður ekki getað ávísað getnaðarvarnarlyfjum.
Hingað til hafa ljósmæður ekki getað ávísað getnaðarvarnarlyfjum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Embætti landlæknis mælir með því að lagafrumvarp um ávísunarrétt ljósmæðra á getnaðarvarnarlyf verði tekið aftur upp á Alþingi og lögunum breytt á þann veg að ljósmæður fái rétt til þess að ávísa getnaðarvarnarlyfjum.

Þetta kemur fram á vef landlæknis þar sem fjallað er um að embættið hafi ítrekað á umliðnum árum haft til umfjöllunar rétt ljósmæðra til að ávísa getnaðarvarnarlyfjum og unnið að því að fá þennan rétt viðurkenndan. Frumvarp um ávísunarrétt ljósmæðra á getnaðarvarnarlyf hafi á sínum tíma verið langt á veg komið í meðförum Alþingis en af einhverjum ástæðum hafi það dagað uppi.

„Í nágrannalöndum okkar, t.d. Svíþjóð, hafa ljósmæður þegar þennan rétt og embættinu er ekki kunnugt um neina vankanta á þessu fyrirkomulagi. Menntun ljósmæðra hér á landi er fyllilega sambærileg við menntun ljósmæðra í nágrannalöndum okkar. Það ættu því ekki að vera neinir meinbugir á því að fylgja fordæmi þeirra,“ segir í frétt á vefnum. 

Þá kemur fram að slíkt fyrirkomulag myndi skapa mikla hagræðingu við alla ráðgjöf varðandi getnaðarvarnir sem í dag er að verulegu leyti í höndum ljómæðra. Auk þess yrði það til þess að létta verulegu starfi af læknum, ekki síst heimilislæknum sem í dag séu hlaðnir verkefnum.

„Íslenskt heilbrigðiskerfi þarf á því að halda, nú meira en nokkru sinni fyrr, að við nýtum þekkingu annarra starfstétta en lækna til þess að koma á aukinni teymisvinnu til hagsbóta fyrir sjúklinga og íbúa landsins.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert