„Guðni er fallegur maður, það er ljóst,“ að mati Tryggva Hansen sem segir að það væri þó eftirsóknarvert að hafa konu sem forseta. Tryggvi sem hefur haft vetursetu í heimatilbúnu tjaldi við Rauðavatn segir það töfrum líkast að upplifa vorið í svo mikilli nánd við dýrin og náttúruna. Við kynntumst Tryggva fyrr í vetur þar sem hann ræddi við mbl.is um íslenskt samfélag sem hann hefur sterkar skoðanir á.
Tryggvi trúir því að hér á landi hafi verið búið um langt skeið áður en landnámsmennirnir komu hingað til lands og að það hafi verið fólk sem hafi verið í sterkri tengingu við náttúruna.
mbl.is kom við hjá Tryggva á dögunum en hann hefur skipt um íverustað frá því að við hittum hann síðast.
Frétt mbl.is: Það eru allir í þessu miðstéttardópi