Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti í morgun Þórunni Ólafsdóttur, sem hefur unnið ötult hjálparstarf í þágu flóttamanna m.a. á grísku eyjunni Lesbos, Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar í Höfða.
Þórunn hefur verið við sjálfboðastörf á eynni Lesbos frá því í ágúst á síðasta ári þar sem hún hefur barist fyrir mannréttindum fólks á flótta, og frætt almenning um þær erfiðu aðstæður sem bíða flóttafólks við komuna til Evrópu.
Þórunn er enn við störf á Lesbos og gat ekki veitt verðlaununum viðtöku sjálf en amma hennar og nafna Þórunn Ólafsdóttir tók við verðlaununum fyrir hennar hönd.
Borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að starf Þórunnar væri ómetanlegt. „Þórunn hefur unnið þrotlaust að hjálparstarfi þar sem neyðin er mest í Evrópu hvort sem það er við móttöku flóttafólks á Lesbos eða í flóttamannabúðunum í Idomeni. Hún hefur lagt sjálfa sig í hættu og lagt allt í sölurnar fyrir starf sitt að mannúðarmálum. Á milli þess sem hún sinnir sjálfboðastörfum hefur hún verið óþreytandi við að fræða Íslendinga um stöðuna í Evrópu varðandi flóttafólk,“ sagði borgarstjóri.
Verðlaunin að þessu sinni eru 600 þúsund krónur.
Að lokinni afhendingu Mannréttindaverðlaunanna úthlutuðu Magnús Már Guðmundsson og Sabine Leskopf fulltrúar í mannréttindaráði, styrkjum mannréttindaráðs til 20 verkefna að upphæð samtals 7 milljónum 150 þúsund krónum.
Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa.
Fréttir mbl.is um störf Þórunnar: