Oddný nýr formaður Samfylkingarinnar

Oddný Harðardóttir er nýr formaður Samfylkingarinnar.
Oddný Harðardóttir er nýr formaður Samfylkingarinnar.

Oddný Harðardóttir hefur verið kjörin nýr formaður Samfylkingarinnar. Úrslitin voru tilkynnt á landsfundi flokksins á Grand Hotel nú í kvöld.

Alls voru greidd 3.877 atkvæði í kjörinu, 15 skiluðu auðu. Hlaut hún 59,9% atkvæða í þriðju hrinu talningarinnar. Engin breyting varð frá 1. hrinu talningarinnar samkvæmt formanni kjörstjórnar.

Í annarri hrinu var Oddný með 43,8% atkvæða, Magnús Orri með 32,5% og Helgi Hjörvar með 23,7%.

Í þriðju hrinu var Oddný svo með 59,9% og Magnús Orri með 40,1%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert