Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, er mjög ánægður með niðurstöðu Hæstaréttar um að ríkinu sé skylt að loka norðaustur/suðvestur flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli. Hann segist hafa búist við að niðurstaðan yrði á þennan veg.
„Mér finnst hún skýr og þetta er fullnaðarsigur í málinu. Meginniðurstaðan er að þessir samningar halda og brautinni verður lokað,“ segir Dagur í samtali við mbl.is.
Íslenska ríkið þarf að loka neyðarbrautinni á Reykjavíkurflugvelli innan 16 vikna. Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði í samtali við mbl.is skömmu eftir að niðurstaða Hæstaréttar lá fyrir að ráðuneytið myndi virða hana.
Frétt mbl.is: Ráðuneytið virðir niðurstöðuna
Reykjavíkurborg hafði höfðað mál á hendur innanríkisráðuneytinu vegna ákvörðunar ráðherra um að neita að loka NA-SV-brautinni, en hún er betur þekkt sem neyðarbraut vallarins. Héraðsdómur hafði komist að þeirri niðurstöðu að Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, hafi verið heimilt að gera samkomulag við borgina árið 2013 og láta af hendi landsvæði sem væri í eigu ríkisins og brautin er á.
Þetta þýðir í raun að Valsmenn hf., sem hafa fengið framkvæmdaleyfi og hafið framkvæmdir á Hlíðarendasvæðinu, geta haldið áfram með framkvæmdir sínar án þess að eiga á hættu að uppbygging þar skarist á við aðflug að neyðarbrautinni.