Fangelsið á Hólmsheiði var tekið í formlega í notkun í dag, en um er að ræða fyrsta fangelsi sem byggt er hér á landi síðan Hegningarhúsið var reist árið 1874. Ljósmyndari mbl.is var á svæðinu og tók myndir af nýja fangelsinu.
Rými er fyrir 56 fanga sem sæta gæsluvarðhaldi og einangrun auk sérstakrar álmu fyrir langtímavistun kvenna, en langtímavistun karla verður áfram á Litla-Hrauni. Innanríkisráðherra lýsti fangelsið formlega opnað í dag, þótt fyrstu fanganna sé ekki að vænta fyrr en síðsumars.
Páll Winkel fangelsismálastjóri sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að markmiðið hefði verið að byggingin yrði björt og myndi draga úr þeirri yfirþyrmandi tilfinningu sem fylgdi innilokun.
Frétt mbl.is: Sé ekki yfirþyrmandi við innilokun