„Þetta er í fyrsta lagi öryggismál og í öðru lagi er sorglegt að þessari braut sé lokað,“ segir Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs, en félagið sinnir nær öllu sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt samningi við heilbrigðisráðuneytið.
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að ríkinu sé skylt að loka norðaustur-/suðvesturflugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli innan 16 vikna. Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir að niðurstaða Hæstaréttar verði virt.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag er Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, mjög ánægður með niðurstöðu Hæstaréttar. „Mér finnst hún skýr og þetta er fullnaðarsigur í málinu. Meginniðurstaðan er að þessir samningar halda og brautinni verður lokað.“