27 milljóna framkvæmdir við Goðafoss

Ferðamenn á gangi eftir malbikuðum göngustígnum.
Ferðamenn á gangi eftir malbikuðum göngustígnum. mbl.is/Golli

Framkvæmdir austan megin við Goðafoss hafa verið í gangi að undanförnu. Þar er kominn útsýnispallur, göngustígur að pallinum og bílastæði og hefur frágangsvinna staðið yfir á svæðinu.

Alls fengust 26,8 milljónir króna frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til verkefna við Goðafoss í ár. Áður hefur Goðafoss fengið þrjár úthlutanir úr sjóðnum. Fyrst fimm milljónir, svo fimmtán milljónir og síðan aftur fimm milljónir í fyrra.

Ferðamenn á nýja útsýnispallinum.
Ferðamenn á nýja útsýnispallinum. mbl.is/Golli

Að sögn Dagbjartar Jónsdóttur, sveitarstjóra Þingeyjarsveitar, stendur einnig til að smíða litla göngubrú neðan við fossinn. Síðar er stefnan að setja útsýnispall, malbikaða göngustíga og stórt bílastæði vestan megin við Goðafoss.

Vilja dreifa umferðinni 

Langflestir ferðamenn hafa komið vestan megin að fossinum en ætlunin er að dreifa umferðinni með því að bæta svæðið austanmegin. „Þetta snýst um að vernda náttúruna í kring. Það er reyndar líka verið að spilla henni svolítið með því að setja stíga en einhvern veginn verðum við að bregðast við þessu,“ segir Dagbjört.


Hún bætir við að tími hafi verið kominn á framkvæmdirnar fyrir löngu síðan.  „Við byrjuðum að hugsa um þetta af alvöru fyrir fjórum til fimm árum síðan með því að deiliskipuleggja svæði  og sækja um framkvæmdasjóðinn. Svo hefur þetta vaxið mun meira en við bjuggumst við.“

Ráða landslagsarkitekta

Hún segir að 46 milljónirnar sem hafa fengist úr sjóðnum komi að mjög góðum notum. „Það kostar sitt að deiliskipuleggja og síðan þarf að vinna alla þessa hönnunarvinnu. Það fer góður peningur í það,“ greinir hún frá en landslagsarkitektar hafa m.a. verið ráðnir til starfa. „Við erum að horfa á þetta til lengri tíma. Við leggjum mikla áherslu á að gera þetta vel.“

Á nýja útsýnispallinum. Vestanmegin við fossinn eru ómalbikaðir göngustígar eins …
Á nýja útsýnispallinum. Vestanmegin við fossinn eru ómalbikaðir göngustígar eins og sjá má. Þar er ástandið ekki gott að mati Dagbjartar. mbl.is/Golli

Ástandið vestanmegin við Goðafoss er alls ekki gott að mati Dagbjartar. „Við reynum að gera eins mikið og við getum þar í haust og sumar en það er takmarkað sem við getum framkvæmt á háannatíma. Vonandi fáum við gott haust því þau hafa verið hvað drýgst hjá okkur,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert