Suðurlandsvegur við Reynishverfi, skammt vestan við Vík í Mýrdal, er enn lokaður en þar varð alvarlegt umferðarslys fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi verður reynt að stýra umferð í gegnum slysstað eins fljótt og mögulegt er en fyrirsjáanlegt er að það verði ekki fyrr en eftir einhverja klukkutíma.
Ekki er vitað um orsakir slyssins en um er að ræða vörubíl sem valt. Enn er verið að vinna á vettvangi og á eftir að fjarlægja bifreiðina.
Fyrri frétt mbl.is: Alvarlegt umferðarslys við Vík