Reyna að bæta við ferð til Nice

WOW air skoðar nú að bæta við flugferð til Nice …
WOW air skoðar nú að bæta við flugferð til Nice á mánudaginn. Ljósmynd/WOW

Bein flugferð WOW air til Nice í Frakklandi á sunnudaginn seldist upp í gærkvöldi en á mánudagskvöldið keppir íslenska landsliðið þar við hið enska í 16-liða úrslitum Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu. Upplýsingafulltrúi WOW air segir augljóslega mikinn áhuga á því að komast út á leikinn.

„Það er uppselt til Nice á sunnudaginn en við erum með ferð til Lyon á laugardaginn,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air í samtali við mbl.is. „Síðan erum við að vinna í því að bæta við vél til Nice, líklega á mánudeginum.“

Þar að auki flýgur WOW air til Parísar daglega.

Netverjar vöktu athygli á því að flugferðin til Nice hafði hækkað mikið í verði í gærkvöldi og var komin upp í 99.999. Til samanburðar kostar ferðin til Nice í dag, fimmtudag, 27.999 krónur.

Aðspurð um verðið segir Svanhvít það eðlilegt að miðaverðið hækki þegar aðsóknin er svona mikil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert